Sesamkringla (Ka3ek bel semsem)

Þessi dásamlega sesamkringla er hefðbundið bakkelsi í mið-austurlöndum, þar er hún gjarnan fyllt með hrærðum eggjum, kryddblöndum, falafel og ostum.

Innihald:

  • 375-500 gr. hveiti
  • 3 egg
  • 200-250 ml volg mjólk
  • 1 tsk. vinegar
  • 1 msk. ger
  • 1 msk. sykur
  • 1/4 tsk. salt
Til penslunar:
  • 1 egg, hrært
  • 1 tsk. vinegar
  • sesamfræ

Aðferð:

  1. blandið saman gerinu, sykrinum og volgri mjólkinni. Gerið ætti að freyða, ef það gerir það ekki þá er hægt að þeyta það saman (sennilega stranglega bannað, en það virkar ;)
  2. setjið hveiti, salti, eggjum og vinegar í skál og blandið rólega saman í höndunum.
  3. blandið gerblöndunni saman við og hnoðið saman í um 10 mín. eða þar til deigið er viðráðanlegt en smá klístrað. Hægt er að blanda meiri mjólk við ef deigið verður of þurrt.
  4. setjið deigið í olíusmurða skál á hlýjum stað og leyfið því að lyfta sér þar til það er orðið tvöfalt að stærð.
  5. skerið deigið í 4 jafna hluta.
  6. fletjið út hvern hluta í rétthyrning (ekki samt taka þennan hluta mjög alvarlega…þarf rétthyrningurinn þarf EKKI að vera nákvæmur)
  7. rúllið upp rétthyrningnum á langhliðinni.
  8. mótið rúlluna í hring (kringlu)
  9. dýfið kringlunni í eggjablönduna og svo í sesamfræ.
  10. hitið ofninn í 270°C og leyfið kringlunni að standa og hvíla á meðan.
  11. bakið í miðjum ofni í ca. 5-7 mín og lækkið þá hitann í 200°C og bakið í 7-10 mín. í viðbót.
  12. kælið og njótið!

Fundið hjá Chef in disguise (http://chefindisguise.com/2012/05/08/ka3ek-bel-semsem-sesame-bread/)

Kókosmuffins með kókos…já ég skrifaði kókos tvisvar :)

Þessar kókosmuffins með kókos eru bara dásamlegar, það er að segja ef þú ert fyrir kókos! Það er í raun hægt að hafa þær kókosmuffins með kókos og kókos!! það er nefnilega hægt að taka mjólkurvöruna út og skipta henni út fyrir kókosmjólk, sem er frábært fyrir þá sem geta ekki eða vilja ekki nota mjólkurvörur. Einnig er hægt að bæta í þessa dásemd súkkulaðibitum, hnetur eða hvað eina sem þú girnist, þá bætir þú við ca 1-1/2 bolla af því sem þú vilt bragðbæta með.

Innihald:

  • 110 gr. kókosolía
  • 95 gr. hveiti
  • 60 gr. heilhveiti
  • 1 1/2 tsk. lyftiduft
  • 1/4 tsk. salt
  • 230 gr. grísk jógúrt, best er að hafa hana við stofuhita
  • 65 gr. sykur
  • 1-2 egg, best er að hafa þau við stofuhita
  • 1 tsk. vanilludropar eða vanillu extract
  • 90 gr. sweetened shredded coconut, hægt að fá í Kosti

Aðferð:

  1. hitið ofninn í 190°C
  2. smyrjið muffinsmót með kókosolíu eða setjið smjörpappír í mótið.
  3. hitið kókosolíuna í litlum potti þar til hún bráðnar, alls ekki hita hana mikið.
  4. blandið saman hveiti, heilhveiti, lyftiduft og salt, bætið um helmingi af sweetened shredded coconut við.
  5. blandið saman í aðra skál egg, sykur, kókosolíu, jógúrt og vanillunni, hellið blöndunni saman við þurrefnin og blandið varlega saman.
  6. hellið deiginu í muffinsmótin og stráið restinni af sweetened shredded coconut yfir hverja múffu, ca. 1-2 tsk. á hverja múffu.
  7. bakið í u.þ.b. 20 mín.
  8. sláðu í gegn ;)

 

Fundið hjá Smitten Kitchen (http://smittenkitchen.com/2012/02/double-coconut-muffins/)

 

Litrík kúlu hálsmen

 

Litríkar kúlur í öllum stærðum og gerðum hafa skotið upp kollinum í margskonar hönnun, bæði í skarti og húsbúnaði.

Auðvelt er að gera þessi skemmtilegu kúlu hálsmen. Dásamlega fallegir litirnir lífga upp á sumarið.

 

Það sem þú þarft:

  • trékúlur, í nokkrum stærðum
  • akrýlmálningu, nokkra liti
  • Mod Podge Gloss (fæst í flestum föndurverslunum)
  • pensil
  • spotta, keðju, leðurband eða hvað sem þú vilt hafa til að þræða kúlurnar upp á (hér er notaður spotti)

Leiðbeiningar:

  1. byrjaðu á því að mála trékúlurnar, gott er að hafa tvær umferðir.
  2. þegar málningin er þornuð er máluð ein umferð yfir með Mod Podge Gloss.
  3. þræðið kúlurnar upp á spottann (keðjuna, leðurbandið e.þ.h.) Til að auðvelda þræðingu er hægt að líma enda bandsins með límbandi.
  4. settu saman allar þær litasamsetningar sem þér dettur í hug.

Fundið hjá Henry happend (http://www.henryhappened.com/diy-painted-wooden-bead-necklace.html)

Girnilegir pizzasnúðar

Fann þessa dásemdar pizzasnúða á bloggi Jenny Steffens,

sjá: (http://jennysteffens.blogspot.com/2011/08/pizza-bread-back-to-school-veggie-soup.html)

  • 1 pizza deig (heimagert eða keypt tilbúið úr búð)
  • hveiti
  • pepperoni
  • bacon
  • mozzarella
  • ristuð paprika, í strimlum
  • ferskt basil, rifið

Fletjið út pizzadeigið á hveitistráðum fleti.

Raðið pepperoni, mozzarella, baconi, paprikunni og basilinu á deigið.

Rúllið deiginu upp og leggið á bökunarplötu með samskeitin niður.

Umsagnir

  • Þetta er núna þriðja árið sem ég kaupi af ykkur dagatal og það er ómissandi við skipulag heimilishaldsins þar sem eru 4 börn á heimilinu og önnum kafnir foreldrar. Ætlaði að vera löngu búin að panta dagatal ársins og krakkarnir eru farnir að minna mig á og kalla eftir dagatalinu á vegginn. Frábær vara hjá ykkur. –Elín
  • Besta dagatal sem til er – bjargar geðheilsunni! – Hjördís
  • Þetta dagatal er alger snilld og gjörsamlega ómissandi :) – Sigurbjörg
  • Takk fyrir frábært framtak. Ómissandi á stóru heimili. – Kolbrún
  • Ég nota þetta til að halda bókhald yfir sumarfrí og viðveru starfsmanna enda passar alveg því við erum 6 á skrifstofunni. – Halla
  • Dagatalið reyndist vel í ár, gott utanumhald fyrir vaktavinnufólk, viðburði í skóla og leikskóla og einnig til að muna afmælisdaga. – Fanney
  • Ég hef keypt dagatal hjá þér undafarin 2 ár og finnst þau ómissandi þarna get ég skrifað vaktaplanið mitt. – Halldóra.
  • Þú veist ekki hvað ég hlakka til að fá það.  Mikið að gera á þessu heimili og mikið skipulag til að allt gangi nú vel upp! – Lára
  • Frábært dagatal. Keypti af þér fyrir 2011 og þetta er algjör snilld. Frábært að hafa 6 reitir þar sem við erum hjón með bráðum 4 börn :-) – Halldóra
  • Alveg frábært fyrir “samsettar” fjölskyldur, heldur algjörlega utan um pabbahelgarnar, mömmuhelgarnar og allt sem því fylgir ;) –Anna
  • Ég keypti dagatalið fyrir ári síðan og það hefur verið ómissandi skipulagsþáttur í heimilishaldinu hjá okkur. Stjúpdætur mínar(10 og 11 ára) leggja allt sitt traust á dagatalið og tékka á hverjum degi hvaða plön eru í gangi og hvenær. Ég get ekki ímyndað mér hvernig ég gæti haldið utan um tómstundir og annað fyrir fjölskylduna…. ætli íbúðin myndi ekki vera veggfóðruð af “post-it” miðum??? Þetta er bara tær snilld:-) -Ingunn
  • Var að panta, get ekki beðið…ELSKA FJÖLSKYLDUDAGATALIÐ MITT!!! ;) –Björg
  • Flott og nauðsynlegt dagatal fyrir skipulagið -Fanný
  • Var svo hrifin af dagatalinu 2010 að ég verð að fá 2011 líka! -Guðný
  • Þetta er æðislegt dagatal hjá þér :) Börnin sögðu þegar 2010 var að klárast að við verðum að fá aftur svona dagatal, við skrifum allt á þetta matseðil æfingar tíma og fl. Takk fyrir! -Svanhvít
  • Frábært framtak. Byrjaði á því að kaupa eitt fyrir sjálfa mig og er núna að kaupa fjögur svo ég geti deilt þeim með allri fjölskyldunni. Það er frábært að vera með 6 reiti til að skrifa í og þetta er frábær stærð. -Elín
  • Á dagatalið fyrir 2010 og er ég rosalega ánægð með það. Takk innilega fyrir frábært dagatal og ég veit að ég verð jafnánægð með 2011 dagatalið frá þér. -Helga
  • Frábært dagatal, ómissandi á okkar heimili. -Elena
  • Við keyptum dagatalið þitt í fyrra og höfum notað það allt árið 2009.  Það hefur reynst mjög vel við að skipuleggja verkefni fjölskyldunnar og auðveldað okkur að halda utanum daglegt líf sem getur orðið ansi flókið oft á tíðum. -Anna Katrín
  • Dagatölin frá ykkur eru frábær og ég bíð spennt eftir að taka 2010 dagatalið í notkun. -Ella
  • Get ekki án þess verið :) -Áslaug
  • Mér finnst dagatalið ykkar algjör snilld! Held utan um ALLT þarna :) Meira að segja matseðill mánaðarins á sér reit:) -Ásta María
  • Er með 2009 dagatalið og þetta er algjör snilld! -Sirrý
  • Elska dagatölin frá ykkur, nota þau út í eitt :) -Birna
  • Ég á nú bara eina dóttur en hún er með athyglisbrest og  þetta er frábær leið til að hafa yfirsýn yfir hvernig dagarnar líta út hjá henni :) -Inga